Gleðisveitin FM Belfast sendir frá sér sína þriðju breiðskífu 22. apríl næstkomandi og hefur henni verið gefið nafnið Brighter Days. Record Records gefur breiðskífuna út á Íslandi og er þetta fyrsta breiðskífan sveitarinnar sem kemur út á vegum útgáfunnar. FM Belfast annast útgáfu plötunnar á erlendri grundu og er henni dreift í gegnum þýsku hljómplötufyrirtækið Morr Music. Útgáfufélag hljómsveitarinnar heitir World Champion Records og gaf það einnig út fyrstu breiðskífu sveitarinnar, How To Make Friends.
FM Belfast hefur um langt skeið verið ein líflegasta tónleikasveit landsins til þónokkurra ára og hefur henni tekist vel að koma glaðværðinni til skila á plasti og í frísklegum myndböndum sínum. Þriðja smáskífan af plötunni, „Everything“, er komin í spilun á öldum ljósvaka og er einnig hægt að ljá hana eyrum inná öllum helstu tónlistarveitum. Áður hafa komið út smáskífurnar „Delorean“ og „We Are Faster Than You“.
Meðlimir FM Belfast eru sem áður Árni Rúnar Hlöðversson, Lóa Hjálmtýrsdóttir, Árni Vilhjálmsson og Örvar Smárason Þóreyjarson.

Deila