EP

Júníus Meyvant - EP

  • Lagalisti
  • 1. Hailslide
  • 2. Color Decay
  • 3. Gold Laces
  • 4. Signals
  • Útgáfuform
  • CD
  • LP
  • Stafrænt

Júníus Meyvant er listamannsnafn Vestmaneyingsins Unnars Gísla Sigurmundssonar. Sem ungur maður var Unnar mjög frjálslegur í anda og komst aðeins tvennt að í hans lífi, þ.e. myndlist og hjólabretti. Annað slagið fann hann fyrir því að tónlistargyðjan togaði í hann og velti hann því oft fyrir sér hvort hann ætti ekki að demba sér í það að læra á hljóðfæri. Á yngri árum var hann orkubolti mikill og óstýrilátur og fljótlega meinaður aðgangur að tónlistarskólanum og þurfti tímabundið að leggja drauma sína um að verða hljóðfæraleikari á hilluna.

Fljótlega eftir að Unnar komst á þrítugsaldurinn færðist ró yfir dýrið sem bjó innra með honum og tók hann í hendur munaðarlausan gítargarm í húsi foreldra sinna og fyrren varði var hann farinn að semja lög. Svo mikil var sköpunargleðin að Unnar upplifði margar andvökunætur í öngum sínum yfir öllum lagahugmyndum sínum og lögin hrönnuðust upp. Laglínurnar leituðu til hans nótt sem nýtan dag og úr varð að Unnar tók upp listamannsnafnið Júníus Meyvant.

Tónlist Júníusar er fullveðja og tilfinningaríkt þjóðlagapopp sem er í senn tímalaust og kunnuglegt. Alúðlegar útsetningar hans láta mann á köflum líða eins og maður sé staddur undir þykku ullarteppi við arineld í kofa hátt uppi í fjöllum eða í hina höndina liggjandi á funheitri sandströnd á suðlægum slóðum.

Árið 2014 var árið sem Júníus hljómaði fyrst fyrir eyrum landsmanna af einhverju viti og gerðist það þegar hann sendi frá sér sína fyrstu smáskífu, „Color Decay“. Lagið vakti mikla lukku og fékk töluverða spilun í útvarpi á Íslandi og sat m.a. í nokkrar vikur í efsta sæti Vinsældarlista Rásar 2. Lagið vakti líka mikla lukku hjá útvarpsstöðinni KEXP í Seattle og valdi Kevin Cole dagskrárstjóri það sem besta lagið á árinu 2014.

Júníus kom, sá og sigraði á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár og fór frá athöfninni með tvenn verðlaun. Annars vegar sem Bjartasta vonin og hinsvegar verðlaun fyrir besta lag ársins.