This Is Icelandic Indie Music (Vol. 2)

This Is Icelandic Indie Music - Vol. 2

  • Lagalisti
  • 1. Mammút - Blóðberg
  • 2. Ojba Rasta - Ég veit ég vona
  • 3. FM Belfast - Brighter Days
  • 4. Agent Fresco - Dark Water
  • 5. Benny Crespo's Gang - Birthmarks
  • 6. Leaves - Ocean
  • 7. Mono Town - Peacemaker
  • 8. Júníus Meyvant - Color Decay
  • 9. Lay Low - Gently
  • 10. Tilbury - Turbulence
  • 11. Vök - Before
  • 12. Hymnalaya - In My Early Years*
  • 13. Snorri Helgason - Kveðja
  • *Ekki á vínyl útgáfunni en fylgir með stafrænu niðurhali
  • Útgáfuform
  • CD
  • LP
  • Stafrænt

Önnur safnskífan í útgáfuröðinni This Is Icelandic Indie Music. Sú fyrsta kom út vorið 2013 og tróndi hún á topp 10 yfir mestu seldu plötur á Íslandi í marga mánuði og seldist í yfir fimmþúsund eintökum.

Á This Is Icelandic Music Vol. 2 er að finna þrettán lög jafnmargra flytjenda og af þeim eru fjögur sem ekki hafa komið út áður. Allir flytjendur á skífunni gefa út tónlist sína hjá Record Records og eru þeir þrettán talsins sem eiga lög á skífunni og vínil og geisladiski.

Óhætt er að segja að Mammút hafi komið, séð og sigrað með þriðju breiðskífu sinni Komdu til mín svarta systir sem kom út í fyrra. Hún var valin af flestum fjölmiðlum landsins besta breiðskífa ársins 2013. Reggísveitin Ojba Rasta fylgdi eftir velheppnaðri jómfrúarskífu sinni frá árinu 2012 með plötunni Friður sem m.a. prýðir lögin „Einhvernvegin svona“ og „Ég veit, ég vona“. Fyrsta breiðskífa stuðsveitarinnar FM Belfast hjá Record Records er þeirra þriðja og heitir Brighter Days. Ein metnaðarfyllsta rokksveit Íslands síðari ára er án efa Agent Fresco og má fullyrða að væntanleg breiðskífa þeirra sé með þeim langþráðari í rokkheimum á árinu 2014. Rokksveitin Benny Crespo‘s Gang hefur ekki sent frá sér nýja breiðskífu síðan samnefnd frumraun þeirra kom út árið 2007. Leaves sendu frá See You In The Afterglow sem er þeirra fjórða breiðskífa og er hún að mati margra þeirra besta hingað til. Mono Town gáfu í ár út frumburð sinn sem inniheldur m.a. hið íðifagra „Peacemaker“ sem er eitt vinsælasta lagið á árinu 2014. Nýjasti meðlimur Record Records-fjölskyldunnar er hinn hæfileikaríki lagahöfundur Júníus Meyvant frá Vestmanneyjum og gefur út breiðskífu árið 2015. Lay Low er með þekktari nöfnum í íslensku tónlistarsenunni í rúman áratug og er fjórða breiðskífa hennar Talking About The Weather hennar besta hingað til. Tilbury komu sáu og sigraðu með fyrstu breiðskífu sinni Exorcise árið 2012 og er ekki orðum ofaukið að hún hafi toppað sig á annarri skífu sinni, Northern Comfort, sem leit dagsins ljós haustið 2013. Sigursveit Músíktilrauna árið 2013 var rafpoppsveitin Vök úr Hafnarfirði og hefur hún verið að gera góða hluti Vestanhafs árið 2014. Hymnalaya komu skemmtilega á óvart með sinni hógværu og víðfermdu frumraun Hymns vorið 2013. Snorri Helgason sneri til leiks á ný á árinu 2013 með sína heilsteyptustu breiðskífu hingað til.