Beneath The Skin

Of Monsters and Men - Beneath The Skin

  • Lagalisti
  • 1. Crystals
  • 2. Human
  • 3. Hunger
  • 4. Wolves Without Teeth
  • 5. Empire
  • 6. Winter Sound
  • 7. Slow Life
  • 8. Organs
  • 9. Black Water
  • 10. Thousand Eyes
  • 11. I Of The Storm
  • 12. We Sink
  • 13. Backyard
  • Útgáfuform
  • CD
  • LP
  • Stafrænt

OF MONSTERS AND MEN hefur gefið út sína aðra breiðskífu, „Beneath The Skin“ á Íslandi á vegum Record Records.

Íslenska útgáfa breiðskífunnar inniheldur lögin „Backyard“ og „Winter Sound“ sem er ekki að finna á hefðbundinni útgáfu breiðskífunnar erlendis heldur eingöngu á viðhafnarútgáfum og á þeirri íslensku.

Hljómsveitin hefur eytt síðastliðnu ári á Íslandi og í Los Angeles með upptökustjóranum Rich Costey sem vann með þeim að breiðskífunni en hann hefur unnið með hljómsveitum á borð við Muse, Death Cab for Cutie, Foster The People og Interpol.

Hljómsveitin er um þessar mundir á tónleikaferðalagi og spilar meðal annars tvenna uppselda tónleika í Eldborgarsal Hörpu í ágúst.
Það má búast við miklu af sveitinni á næstunni og er óhætt að segja að margt hafi gerst síðan fyrsta breiðskífa þeirra kom út á Íslandi árið 2011 en hún hefur selst í tveim milljónum eintaka á heimsvísu.

Frá árinu 2011 hefur sveitin spilað marga eftirminnilega tónleika á hátíðum á borð við Lollapalooza, Bonnaroo, Coachella, Iceland Airwaves, Newport Folk Festival, Osheaga, Glastonbury, Reading and Leeds, Pukkelpop og Splendour In The Grass auk fjölda annarra uppseldra tónleika um allan heim. Þau hafa heillað sjónvarpsáhorfendur í þáttum á borð The Tonight Show með Jay Leno, Late Show með Jimmy Fallon, The Graham Norton Show og Saturday Night Live. Einnig lánaði sveitin lagið sitt „Dirty Paws“ í kynningarmyndbrot á kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty og í kynningarmyndband fyrir iPhone 5, auk þess sem lagið „Silhouettes“ var sérsamið fyrir kvikmyndina The Hunger Games: Catching Fire.