- Lagalisti
- 1. In The Eye Of The Storm
- 2. I See
- 3. Jackie O
- 4. Peacemaker
- 5. Two Bullets
- 6. Yesterday's Feeling
- 7. The Deed Is Done
- 8. Place The Sound
- 9. No More (Shall I Fear You)
- 10. Far Away
- 11. Can Deny
- Útgáfuform
- CD
- LP
- Stafrænt
Rokk plata ársins!
Rokk lag ársins! (Peacemaker)
-Íslensku tónlistarverðlaunin 2014
In The Eye of the Storm er frumburður hljómsveitarinnar Mono Town og á augabragði heyrist að hún hefur nostrað við hvert einasta smáatriði á plötunni sem er ákaflega vel samin og útsett. Í grunninn spilar hljómsveitin hljómfagurt og melódískt rokk sem sækir áhrif sín víða og bliknar hún hvergi hjá í samanburði við erlendar sveitir eins Midlake, Caveman, Fleet Foxes og Radiohead, svo nokkur dæmi séu tekin. Hljómur plötunnar er fádæma góður og segja má það sama um allan tónlistarflutning sem ekki er framkvæmdur af aukvissum. Radd- og strengjaútsetningar gefa plötunni mjög myndrænan og tignarlegan blæ sem á köflum kalla fram skírskotanir í ekki ómerkari tónskáld á borð við Ennio Morricone og Serge Gainsbourg.
„In The Eye of the Storm“ var gerð fáanleg hjá tónlistarstreymiþjónustunni Deezer í lok janúar og eru notendur þar afar hrifnir af henni þar sem hún komst í fyrsta sæti á lista yfir mest streymdu plöturnar í löndum eins og Íslandi, Kanada, Brasilíu, Írlandi, Ítalíu og Tyrklandi. Tónlistarveitan er opin í rúmlega 180 löndum og mánaðarlega eru þar um 12 milljónir virkir notendur. Það eru ekki bara notendur Deezer sem eru hrifnir af sveitinni því hin bandaríska hljómsveit Pixies bauð Mono Town að hita upp fyrir sig á tónleikaferð sinni um Norðurlönd í lok síðasasta árs. Starfsmenn útvarpstöðvarinnar KEXP í Seattle féllu í stafi þegar þau heyrðu í hljómsveitinni fyrst fyrir um einu og hálfu ári og hafa hlustendur víða um heim tekið mjög vel í sveitina og sama má segja um hlustendur Rásar 2 sem eru mjög hrifnir.